Tilraunatölfræði


Dánir

Samantekt

Hér eru birt nýjustu gögn um dána og ná upplýsingar til ársins 2023. Byggt er á upplýsingum úr dánartilkynningum sem skráðar eru hjá Þjóðskrá Íslands. Gögnin gefa góðar vísbendingar um þróun á tíðni andláta þó gera verði ráð fyrir einhverju vanmati í nýjustu tölunum um fjölda látinna, þá aðallega vegna dánarvottorða sem berast seint til Þjóðskrár Íslands. Talnaefni er uppfært ársfjórðungslega.

Lýsing

Birtar eru upplýsingar um dána með lögheimili á Íslandi við andlát. Gögnin eru sundurliðuð eftir kyni, aldri og viku andláts.

Markmið

Vegna mikillar eftirspurnar um talnaefni, bæði alþjóðlega og innanlands, gefur Hagstofa Íslands út tölur um fjölda andláta eftir vikum.

Dánir eftir vikum 2017-2023

Síðast uppfært: 20. nóvember 2023

Fyrstu 36 vikur ársins 2023 dóu að meðaltali 48,4 í hverri viku. Til samanburðar dóu að meðaltali 45,1 fyrstu 36 vikur áranna 2017-2022. Að jafnaði dóu flestir í aldursflokknum 90 ára og eldri yfir tímabilið 2017-2022. Tíðasti aldur látinna fyrstu 36 vikur 2023 var 90 ára en 87 ár fyrir sömu vikur áranna 2017-2022.

Á myndinni hér að neðan má sjá línurit yfir þróun á vikulegri dánartíðni árin 2017-2023. Til þess að sýna betur þróun vikulegrar dánartíðni miða línurnar í myndritinu við tíu vikna hlaupandi meðaltal í stað þess að sýna hráar talningar gagna. Með þessu móti er auðveldara að bera saman og skoða þróun yfir þau ár sem liggja til grundvallar enda er vikuleg dánartíðni yfirleitt mjög lág á Íslandi og tölurnar talsvert flöktandi frá einni viku til annarrar.



Talnaefni

Dánir - vikugögn 201123 (xlsx)


Lýsigögn

Rétt er að benda á að talningar á dánum fyrir árið 2023 eru bráðabirgðatölur og eru líklegar til þess að vera vanmat á fjölda dáinna, aðallega vegna síðbúinna dánartilkynninga. Fyrir útreikninga á dánum af 100.000 íbúum var notast við meðalmannfjölda hvers árs sem deilitölu.

Við útgáfuna 19. nóvember 2021 var gerð breyting á skilgreiningu á vikum til samræmis við útgáfur Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Vikan hefst nú á mánudegi og hefst fyrsta vika hvers árs því á fyrsta mánudegi ársins. Sem dæmi þá tilheyra fyrstu þrír dagar ársins 2021, viku 53 fyrir árið 2020, eins og sést í töflu 4 í talnefni sem fylgir þessari frétt. Þetta leiðir til þess að samlagning vikna gengur ekki lengur upp í heildarfjölda fyrir árið. Hins vegar er þetta grundvöllur fyrir alþjóðlegan samanburð. Fyrri útgáfur byggðu á þeirri reglu að vikur gengu upp í ár, þannig að samanlagður fjöldi látinna yfir vikur hvers árs gaf rétta heildartölu fjölda látinna á því ári.

Nánari lýsigögn um dána má finna hér: Lýsigögn um dána


Öllum eru heimil afnot af tilraunatölfræði Hagstofu Íslands. Vinsamlegast getið heimildar.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030. Netfang: mannfjoldi@hagstofa.is