Samfélag

Kvikmyndahúsaeigendur í Reykjavík, atvinnuleikhúsin og söfn á landinu senda Hagstofu t.d. tölur um gesti, fjölda sýninga, uppruna kvikmynda og leikverka einu sinni á ári. Hagstofan tekur einnig saman tölur um útgefnar bækur og tímarit og efni þeirra, svo og um ritakost, útlán og starfsmenn bókasafna. Þá er tölum safnað um starfsemi fjölmiðla og tölur birtar um útsendingartíma og efni útvarps- og sjónvarpsstöðva.