FRÉTT VINNUMARKAÐUR 01. FEBRÚAR 2024

Alls voru 4.690 laus störf á íslenskum vinnumarkaði á fjórða ársfjórðungi 2023 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 238.000 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 1,9%, sjá öryggisbil í töflu.

Laus störf voru 2.150 færri nú en á þriðja ársfjórðungi 2023 og hlutfall lausra starfa lækkaði um 0,8 prósentustig á milli ársfjórðunga. Samanburður við fjórða ársfjórðung 2022 sýnir að lausum störfum fækkaði um 1.460 á milli ára og hlutfall lausra starfa dróst saman um 0,7 prósentustig.

Hlutfallsleg eftirspurn eftir starfsfólki var mest á meðal rekstraraðila í Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð líkt og hefur verið undanfarna sex ársfjórðunga. Laus störf í atvinnugreininni voru 1.130 talsins og hlutfall lausra starfa 6,6%.

Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn sem nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með einn eða fleiri starfsmann í vinnu á viðmiðunardegi rannsóknarinnar. Valið er í úrtak einu sinni á ári í byrjun hvers árs á grundvelli fyrirtækjaskrár Hagstofu Íslands ársins á undan. Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir fjórða ársfjórðung 2023 var 15. nóvember 2023. Alls fengust 563 svör og var svarhlutfall 91%.

Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum sem eru bráðabirgðatölur þangað til tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili. Eftir þann tíma eru þær festar og metnar áreiðanleg lýsing á þýðistölum. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.

Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.