FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. JÚNÍ 2013

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum maímánuði, metinn á föstu verði, var 27,3% meiri en í maí 2012. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 1,9% miðað við sama tímabil 2012, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 89.674 tonnum í maí 2013 samanborið við 65.488 tonn í maí 2012.

Botnfiskafli jókst um tæp 5.500 tonn frá maí 2012 og nam tæpum 45 þúsund tonnum. Þar af var þorskaflinn rúm 18.800 tonn, sem er aukning um tæp 1.600 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 3.400 tonnum sem er rúmum 1.100 tonnum minni afli en í maí 2012. Svipað mikið veiddist af karfa í maí 2013 og maí 2012 en karfaaflinn nam tæpum 4.700 tonnum. Tæp 5.600 tonn veiddust af ufsa sem er rúmlega 400 tonna aukning frá maí 2012.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 37.500 tonnum, sem er rúmlega 18.000 tonnum meiri afli en í maí 2012. Aukninguna má rekja til aukningu í kolmunnaafla en nær engar aðrar uppsjávartegundir voru veiddar í mánuðinum, líkt og í maí 2012.

Flatfiskaflinn var tæp 3.500 tonn í maí 2013 og dróst saman um 30 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam rúmum 2.800 tonnum samanborið við tæplega 2.000 tonna afla í maí 2012.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunartímabili sem hér er fiskveiðiárið 2011-2012. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.