FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. APRÍL 2024

Skráðar gistinætur í mars voru um 649.000 sem er um 1,5% meira en í mars 2023 (639.000). Fjöldi gistinátta á hótelum var 428.200 sem er 1,1% meira en í mars í fyrra.

Gistinætur erlendra ferðamanna í mars voru um 79% gistinátta, eða um 513.000, sem er 0,8% aukning frá fyrra ári (509.000). Gistinætur Íslendinga voru um 136.000 sem er 4,5% meira en í mars í fyrra (130.000). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 505.000 og um 144.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.).

Gistinætur á hótelum í mars voru 428.200 eða 1,1% fleiri en á fyrra ári (423.600). Töluverð aukning varð á hótelgistingu í mars á Suðurlandi (7,8%) og á Vesturlandi og Vestfjörðum (7,4%) á meðan mikill samdráttur var á Suðurnesjum (-12,7%) og Austurlandi (-10,1%). Á höfuðborgarsvæðinu stóð hótelgisting nánast í stað á milli ára.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru 343.100, eða 80,1% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 85.100 (19,9%). Fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna dróst saman um 0,9% á milli ára en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 9,8%.

Rétt er að hafa í huga að páskar voru í mars í ár en í fyrra voru þeir í apríl. Ætla má að þetta hafi áhrif á aukningu í fjölda íslenskra gistinátta á milli ára.

Framboð hótelherbergja í mars jókst um 2,3% miðað við mars 2023. Á sama tíma dróst herbergjanýting á landinu saman um 1,8 prósentustig. Herbergjanýting jókst lítillega á Suðurlandi og á Vesturlandi og Vestfjörðum en í öðrum landshlutum dróst hún saman á milli ára, mest á Austurlandi (-8,2).

Áætlað er að óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna í heimagistingu í mars hafi verið um 90.000 í gegnum vefsíður sem miðla heimagistingu og um 11.000 hjá vinum og ættingjum en að fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna í húsbílum hafi verið um 2.000. Sem stendur er verið að yfirfara aðferðir við skiptingu óskráðra gistinátta erlendra ferðamanna í heimagistingu niður á landshluta og verða nýjar tölur um hana ekki birtar meðan á því stendur.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2023 og 2024 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir mars 2024. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.