Mannfjöldi
Mannfjöldaþróun 2012
Mannfjöldi | 9. apríl 2012
|
|
Hinn 1. janúar 2013 voru íbúar landsins 321.857. Þeim fjölgaði um 0,7% frá sama tíma ári áður eða um 2.282 einstaklinga. Árið 2012 fæddust 4.533 börn en 1.952 létust á árinu. Fæddir umfram dána voru því 2.581. Þá fluttust 6.276 utan en 5.957 til landsins. Brottfluttir umfram aðflutta voru því 319. Í upphafi árs 2013 voru 60 þéttbýlisstaðir á landinu með 200 íbúa eða fleiri. Auk þeirra voru 35 smærri byggðakjarnar með 50–199 íbúa. Alls bjuggu 301.464 í þéttbýli 1. janúar síðastliðinn og hafði þá fjölgað um 2.651 frá 1. janúar í fyrra. |
Almenn rit
Greinar og erindi
- Íslensk hagskýrslusvæði á héraðsstjórnarstigi
Ómar Harðarson, Jórunn Íris Sindradóttir (1. október 2012) - Endurskilgreining Hagstofu Íslands á þéttbýlisstöðum og byggðakjörnum
Jórunn Íris Sindradóttir, Ómar Harðarson (14. febrúar 2012) - Athugun á búferlaflutningum til og frá Íslandi 1961-2009
Grein eftir Ómar Harðarson (13. júlí 2010) -
The population statistics in Iceland. Analysis of population estimation methods of Statistics Iceland (Iceland)
Grein eftir Ómar Harðarson á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Joint UNECE/Eurostat Expert Group Meeting on Register-Based Censuses, The Hague, 10-11 May 2010 -
Long-term and short term migration in Iceland. Analysis of estimation methods of Statistics IcelandGrein eftir Ómar Harðarson á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Joint UNECE/Eurostat Expert Group Meeting on Register-Based Censuses, The Hague, 10-11 May 2010
- Census in Iceland 2011
Erindi Ómars Harðarsonar flutt á fundi Nordisk Adress Forum við Mývatn 10.-11. júní 2009 - Mannfjöldinn, heimili og húsnæði: Um tengingu íbúa og íbúða
Erindi Ómars Harðarsonar flutt á fundi á vegum Fasteignamats ríkisins undir yfirskriftinni Hvernig finn ég staðinn? Er sama hvernig staðföng eru skráð, skilgreind og birt? 28. febrúar 2008