Frétt

föstudagur 29. júní 2012
Nr. 122/2012

Verðmæti seldra framleiðsluvara 2011

Verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2011 var 728 milljarðar króna sem er aukning um 63,1 milljarð króna eða 9,5% frá árinu 2010. Á sama tíma hækkaði vísitala framleiðsluverðs um 9,2% og hefur því verðmæti seldra framleiðsluafurða aukist um 0,3% að raungildi. Framleiðsla málma og framleiðsla á fiskafurðum vega sem fyrr þyngst. Þannig nam framleiðsla málma 35,1% af heildarverðmæti árið 2011 og framleiðsla á fiskafurðum 34,1%. Verðmæti seldra framleiðsluvara án framleiðslu málma og fiskafurða nam tæpum 224 milljörðum króna á síðasta ári og jókst um tæpa 20,4 milljarða eða um 10% frá fyrra ári.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýju hefti Hagtíðinda um verðmæti seldra framleiðsluvara sem Hagstofan gefur út í dag.

Verðmæti seldra framleiðsluvara 2011 - Hagtíðndi

Talnaefni



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260, netfang fof[hja]hagstofa.is

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi