Frétt
mánudagur - 19. janúar 2009
Nr. 10/2009
Mannfjöldi 1. desember 2008 eftir trúfélögum og sóknum
Hagstofa Íslands hefur tekiđ saman upplýsingar um mannfjölda eftir trúfélögum og sóknum miđađ viđ 1. desember 2008. Í ţjóđskrá er skráđ ađild ađ Ţjóđkirkjunni og hverju trúfélagi sem dóms- og kirkjumálaráđuneytiđ hefur viđurkennt til skráningar. Ríkissjóđur skilar sóknargjaldi til ţjóđkirkjusafnađa, skráđra trúfélaga og Háskólasjóđs ár hvert fyrir hvern einstakling sem náđ hefur 16 ára aldri. Athuga skal ađ nýfćdd börn teljast til trúfélags móđur.
Hlutfall sóknarbarna í ţjóđkirkju komiđ niđur fyrir 80%
Hinn 1. desember síđastliđinn voru sóknarbörn í Ţjóđkirkjunni 16 ára og eldri 195.576 talsins en ţađ er fjölgun um 1.032 frá fyrra ári. Hlutfallslega hefur aftur á móti orđiđ ţar fćkkun úr 80,1% í 78,6% af öllum 16 ára og eldri. Ţetta er í fyrsta sinn sem ţetta hlutfall fer niđur fyrir 80%. Ţađ má ađ nokkru leyti skýra međ miklum ađflutningi erlendra ríkisborgara á árinu 2008 en ţeir flokkast viđ komuna til landsins međ óskráđum trúfélögum nema ţeir skrái sig sérstaklega í trúfélög. Í óskráđum og ótilgreindum trúfélögum teljast nú 19.323 miđađ viđ 16.713 í fyrra. Ţađ er aukning um rúmlega 2.600 einstaklinga eđa tćplega 0,8% af heildarmannfjölda.
| Međlimir helstu trúfélaga 16 ára og eldri 1. desember 2008 | |||
| Fjöldi | Hlutfallsleg skipting | ||
| Alls | 248.783 | 100,0 | |
| Ţjóđkirkjan | 195.576 | 78,6 | |
| Fríkirkjur | 11.939 | 4,8 | |
| Fríkirkjan í Reykjavík | 6.008 | 2,4 | |
| Fríkirkjan í Hafnarfirđi | 3.735 | 1,5 | |
| Óháđi söfnuđurinn | 2.196 | 0,9 | |
| Trúfélög utan Ţjóđkirkju og fríkirkjusafnađa | 14.176 | 5,7 | |
| Kaţólska kirkjan | 6.650 | 2,7 | |
| Hvítasunnukirkjan á Íslandi | 1.625 | 0,7 | |
| Ásatrúarfélag | 1.168 | 0,5 | |
| Önnur skráđ trúfélög | 4.733 | 1,9 | |
| Önnur trúfélög og ótilgreint | 19.323 | 7,8 | |
| Utan trúfélaga | 7.769 | 3,1 | |
4,7% tilheyra fríkirkjusöfnuđum en 5,9% öđrum trúfélögum
Hinn 1. desember síđastliđinn tilheyrđu 4,7% ţjóđarinnar 16 ára og eldri einum af fríkirkjusöfnuđunum ţremur: Fríkirkjunni í Reykjavík (6.008), Fríkirkjunni í Hafnarfirđi (3.735) og Óháđa söfnuđinum (2.196). Međlimum í Fríkirkjusöfnuđum fjölgađi lítils háttar milli ára eđa um 464 einstaklinga.
Í dag tilheyra 5,9% íbúa landsins trúfélögum í skráđum trúfélögum utan Ţjóđkirkju og fríkirkjusafnađa. Flest ţessara trúfélaga eru smá og einungis ţrjú telja fleiri en 1.000 međlimi. Kaţólska kirkjan er fjölmennust ţeirra. Međlimir hennar 16 ára og eldri voru 6.650 áriđ 2008 samanboriđ viđ 5.678 1. desember 2007. Hvítasunnukirkjan er nćst stćrst. Ţar eru međlimir nú 1.625 samanboriđ viđ 1.559 frá fyrra ári. Ásatrúarfélagiđ er ţriđja stćrsta trúfélagiđ en međlimir ţeirra 16 ára og eldri eru nú 1.168 samanboriđ viđ 1.059 ári áđur.
Utan trúfélaga höfđu 7.769 kosiđ ađ standa 1. desember 2008 samanboriđ viđ 7.310 ári fyrr.
Skráđum trúfélögum fjölgar um 15 frá 1990
Skráđum trúfélögum hefur fjölgađ talsvert á undanförnum árum; skráđ trúfélög utan Ţjóđkirkju og fríkirkjusafnađa eru nú 25 en voru 10 áriđ 1990. Eitt nýtt trúfélag varđ til áriđ 2008 en ţađ heitir Soka Gakkai International á Íslandi (SGI á Íslandi) og var viđurkennt sem skráđ trúfélag af dóms- og kirkjumálaráđuneytinu hinn 14. apríl síđastliđinn.
Talnaefni