Flugvellir
- Skráningaratriði fyrir viðfangsefni
- Efni
- Tími
- Áreiðanleiki og öryggismörk
- Samanburður
- Aðgangur að upplýsingum
0. Skráningaratriði fyrir viðfangsefni
0.1 Heiti
Flugvellir0.2 Efnisflokkur
Ferðamál, samgöngur og upplýsingatækni0.3 Umsjón; stofnun, deild, sérfræðingur o.s.frv.
Lárus BlöndalHagstofu Íslands
Sími: 528 1281
larus.blondal@hagstofa.is
0.4 Tilgangur og aðdragandi
Tilgangurinn er að safna saman upplýsingum um flugumferð.0.5 Notendur og notkunarsvið
Ferðamannaþjónusta og áhguafók um flugumferð og flutninga.0.6 Heimildir
Flugmálastjórn og Flugmálastjórn Keflavíkurflugvelli0.7 Lagalegur grundvöllur fyrir hagskýrslugerð
Lög um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð nr. 163/2007.0.8 Svarbyrði við innsöfnun
Gögn varðandi Keflavíkurflugvöll berast mánaðarlega. Öðrum gögnum er safnað í tengslum við útgáfu Landshaga.0.9 Ákvæði vegna EES og ESB
1. Efni
1.1 Efnislýsing
Upplýsingum er safnað um fjölda farþega til og frá landinu um Keflavíkurflugvöll, svo og um vörur og póst, í tonnum talið, til og frá landinu um Keflavíkurflugvöll. Jafnframt er safnað upplýsingum um vöru- og póstflutninga, í tonnum talið, um íslenska áætlunarflugvelli, svo og fjölda farþega um íslenska áætlunarflugvelli en þeim fjölda er skipt eftir því hvort um er að ræða áætlunarflug, leigu- og þjónustuflug eða sjúkraflug.1.2 Tölfræðileg hugtök
2. Tími
2.1 Viðmiðunartími talnaefnis
Viðmiðunartími er almanaksárið.2.2 Vinnslutími
Vinnslutími er um haust í tengslum við útgáfu Landshaga.2.3 Stundvísi birtingar
Upplýsingar birtast árlega í Landshögum, sem koma út á haustmánuðum og eru jafnframt aðgengilegar á vef Hagstofunnar.2.4 Tíðni birtinga
Árlegar töflur í Landshögum, árbók Hagstofu Íslands, svo og á vef Hagstofunnar.3. Áreiðanleiki og öryggismörk
3.1 Nákvæmni gagna og áreiðanleiki
Upplýsingarnar teljast nákvæmar og áreiðanlegar.3.2 Skekkjuvaldar í gögnum
3.3 Tölur um öryggismörk/skekkjumælingar
4. Samanburður
4.1 Samanburðarhæfi milli tímabila
Samanburðarhæfi er gott milli ára. Einnig er unnt að lesa út úr gögnum frá Flugmálastjórn Keflavíkurflugvelli samanburð milli mánaða, en þær upplýsingar eru ekki birtar í Landshögum, heldur einungis tölur fyrir árið í heild.4.2 Samanburður við aðrar hagtölur
4.3 Samband milli bráðabirgðatalna og lokatalna
Ekki er unnið með bráðabirgðatölur.5. Aðgangur að upplýsingum
5.1 Miðlunarleiðir
Hagtölur, efnisflokkaðar veftöflurLandshagir, árbók Hagstofu Íslands
5.2 Grunngögn; varðveisla og notkunarmöguleikar
Gögnin berast á Excel formi og eru geymd þannig.5.3 Skýrslur
5.4 Aðrar upplýsingar
© Hagstofa �slands, �ann 18-8-2008